flugfréttir
Argentína stefnir á farþegaflug til Suðurskautslandsins í janúar
- Flogið verður með ferðamenn til afskektustu heimsálfu veraldar
Flugvél í aðflugi að flugbrautinni á Marambio-rannsóknarstöðinni
Argentínska flugfélagið LADE (Lineas Aéreas del Estado) ætlar sér að hefja reglubundið farþegaflug til Suðurskautslandsins og er stefnt á að fljúga allan ársins hring.
Með þessu mun hin almenni borgari fá tækifæri á að heimsækja Suðurskautslandið
sem er afskektasta heimsálfa veraldar en LADE er ríkisrekið flugfélag í umsjá argentínska
flughersins.
Flogið verður til Marambio-rannsóknarstöðvarinnar sem staðsett er í 1.160 kílómetra fjarlægð suður
af syðsta odda Suður-Ameríku og verður fyrsta flugið flogið síðar í þessum mánuði ef
allt nær fram að ganga.
Marambio-rannsóknarstöðin á Suðurskautslandinu
Varnarmálaráðuneyti Argentínu segir að verið sé að undirbúa flugbrautina á Marambio-stöðinni
fyrir borgaralegt flug og þá er verið að ganga frá flugvélakaupum fyrir flugið en ekki kemur
fram hvaða flugvélategund verður notið.
Samkvæmt heimildum þá er ATR-72 og Bombardier Dash-8 Q400 þær flugvélar sem koma til greina
að nota.
Marambio-rannsóknarstöðin er ein af þeim 13 rannsóknarstöðvum sem Argentína starfrækir á Suðurskautslandinu
Marambio er ein af þeim 13 rannsóknarstöðvum sem Argentína starfrækir á Suðurskautslandinu
og er hún starfrækt allan ársins hring en flugbrautin þar er sú fyrsta sem tekin var í notkun á sínum tíma á Suðurskautslandinu.
Flugbrautin á Marambio er sú sem er mest notuð á Suðurskautslandinu og er staðurinn oft
nefndur hliðið að Antarktíku en brautin hentar mjög vel fyrir flugvélar með hjólabúnað.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.