flugfréttir

Cirrus SR22 hvarf af radar yfir Mexíkóflóa

4. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 17:00

Vélin hvarf af ratsjá yfir Mexíkóflóa í gærkvöldi

Leit stendur nú yfir af lítilli, einshreyfils flugvél af gerðinni Cirrus SR22 við Mexíkóflóa en vélarinnar var saknað í gær er hún var á leið frá Oklahoma til Texas.

Vélin fór í loftið frá flugvellinum í Oklahoma City og var förinni heitið til Georgetown Municipal flugvallarins, skamm norður af borginni Austin, en vélin hélt áfram framhjá áfangastað og út á Mexíkóflóa.

Samkvæmt bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) þá hætti flugmaðurinn að svara flugumferðarstjórn og er talið að hann hafi mögulega misst meðvitund.

Bandaríska loftvarnakerfið (NORAD) ræsti út tvær F-16 orrustuþotur frá herflugvelli í Houston til að gera tilraun til að koma auga á vélina og ná augnsambandi við flugmanninn.

Vélin sem leitar er að ber skráninguna N325JK

Bæði var reynt að ná sambandi við flugmanninn með fjarskiptum auk þess sem önnur herþotan flaug í kringum vélina til að ná athygli flugmannsins og gefa honum merki samkvæmt reglugerðum um einelti loftfara en án árangurs.

Síðar voru tvær F-15 orrustuþotur sendar af stað frá New Orleans þar sem hinar tvær herþoturnar voru orðnar tæpar á eldsneyti en þeim tókst ekki að ná til vélarinnar.

Fram kemur að flugmaðurinn hafi verið einn í vélinni og hefi hann setið uppréttur í sæti sínu.

Yfirvöldum í Mexíkó var gerð viðvart en seinast sást til vélarinnar í um 219 mílna fjarlægð norðvestur af Cancún í 15.000 fetum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga