flugfréttir

Hóta verkfalli vegna flugstjóra sem var leystur af vakt sinni

5. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:37

Flugvélar Air France

Öll félög atvinnuflugmanna hjá Air France hafa hótað verkfallsaðgerðum þar sem þau fordæma aðgerðir stjórnar Air France sem virti að vettugi ákvörðun flugstjóra eins hjá félaginu sem neitaði að fljúga þotu félagsins vegna breytingar sem gerð var á áhöfn vélarinnar fyrir brottför.

Flugstjórinn, sem átti að fljúga einni farþegaþotu félagsins frá Orly-flugvellinum í París, var ósáttur við val á flugfreyju um borð sem átti að leysa af hólmi aðra flugfreyju sem flugstjórinn taldi ekki eins reynda og sagði hann að breytingin varðaði flugöryggi á þessu tiltekna flugi.

Air France gerði sér hinsvegar lítið fyrir og tók flugstjórann af vaktinni og skipti honum út fyrir öðrum flugstjóra sem var kallaður til.

Í tilkynningu frá öllum verkalýðsfélögum franskra atvinnuflugmanna, SNPL, SPAF og Alter, kemur fram að flugstjórinn hafi verið leystir frá störfum gegn hans vilja sem stangast á við reglugerðir í fluginu frá Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO).

„Með því að beita þessari aðferð er Air France að traðka á grundvallarreglu sem kveður á um að flugstjóri hafi fullan rétt til að taka þær ákvarðanir sem hann telur réttmætar til að tryggja öryggi flugsins“, kemur fram í yfirlýsingu.

Farið er fram á að stjórn Air France viðurkenni mistök sín auk þess sem farið er fram á að klausa í starfsreglum Air France verði breytt þar sem fram kemur að endurskoða megi „umdeild atvik“ með undanþágum frá reglugerð um vægi flugstjórans.

Ef ekkert svar berst frá Air France ætla flugmenn félagsins að hefja verkfallsaðgerðir frá og með 11. janúar.

„Flugmennirnir geta ekki fórnað þekkingu sinni vegna sjónarmiða stjórnarinnar sem tekur hagnað fram yfir öryggi farþega og áhafnarinnar“, segir ennfremur í tilkynningu frá verkalýðsfélögunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga