flugfréttir

Endalok Airbus A380 veltur á nýrri pöntun frá Emirates

- Sagt að Airbus sé tilbúið að leggja drög að því að hætta framleiðslunni

5. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 08:32

Risaþotan Airbus A380 í aðflugi að London Heathrow þann 27. desember síðastliðinn

Samkvæmt þremur heimildarmönnum, sem kunnugir eru innan herbúða Airbus og koma ekki fram undir nafni, þá er Airbus í starholunum með að hætta framleiðslu á risaþotunni A380 ef Emirates ákveður að leggja ekki inn nýja pöntun í risaþotuna.

Um er að ræða þá pöntun sem beðið var eftir frá Emirates á flugsýningunni í Dubai í nóvember fyrir áramót en viðræður höfðu staðið yfir um kaupin en án árangurs.

Emirates er stærsti viðskiptavinur Airbus er kemur að risaþotunni en svo virðist sem að framtíð Airbus A380 velti á ákvörðun Emirates.

Nokkur pattstaða virðist ríkja um málið þar sem Airbus á erfitt með að tryggja áframhaldandi framleiðslu á Airbus A380 nema fá tryggingu fyrir pöntun frá Emirates á sama tíma og Emirates á erfitt með að panta fleiri risaþotur nema Airbus geti tryggt það að A380 verði framleidd áfram í að minnsta kosti 10 ár.

Í dag eru 13 flugfélög sem hafa alls 217 Airbus A380 risaþotur í flota sínum en 10 þeirra flugfélaga eru að finna í Asíu og í Miðausturlöndum og aðeins þrjú flugfélög í Evrópu. Þá má geta þess að ekkert bandarískt flugfélag hefur pantað Airbus A380.

Airbus A380 í samsetningu í verksmiðjum Airbus í Toulouse

„Ef engin pöntun kemur frá Emirates þá mun Airbus hefja það ferli að leggja drög að því að stöðva framleiðslulínuna“, segir einn aðili í viðtali við Reuters-fréttastofuna.

Þá kemur fram að þrátt fyrir að búið sé að verja milljörðum í endurbætur á farrými og innréttingum á risaþotunni þá hefur eftirspurnin eftir A380 ekki aukist og enn er engin eftirspurn eftir notuðum risaþotum.

Flugsérfræðingur einn segir að það myndi frekar borga sig fyrir Airbus að einblína á þær þotur sem eru að skila framleiðandanum hagnaði en Airbus hefur hætt við fyrirhugaðar fjárfestingar í uppfærslu á risaþotunni sem hefði hlaupið á yfir 2 þúsund og fimmhundruð milljörðum króna.

Samt sem áður þá á Airbus eftir að smíða yfir 100 eintök af risaþotunni en aðeins þrjú flugfélög eiga von á fleiri risaþotum sem eru Singapore Airlines, Emirates og Qatar Airways.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga