flugfréttir

FAA varar við árekstrarhættu þegar ekið er inn á flugbraut

5. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:26

Cessna ekur inn á flugbraut fyrir flugtak

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa gefið frá sér viðvörun varðandi þá áhættu sem stafar af því er flugvél í akstri þverar eða ekur inn á flugbraut í notkun vegna árekstrarhættu við aðrar flugvélar.

Mjög sjaldgæft er að tvær flugvélar rekist á hvora aðra á meðan önnur vél ekur yfir flugbraut og hefur slíkum tilvikum fækkað töluvert að undanförnu vestanhafs.

Þrátt fyrir þá þá tekur FAA enga áhættu og slakar ekki á reglugerðum varðandi slíkt og hafa verið gefin út tilmæli sem viðbót við verklagsreglur í flugi.

FAA flokkar alvarleika atvika niður í fjóra flokka sem eru Category A, B, C og D en A og B eru alvarlegustu tilvikin þar sem árekstur varð eða mjög litlu munaði og aðeins færni flugmanna og heppni varð til þess að ekki fór illa.

Atvik sem flokkast sem C og D eru þau þar sem flugmenn höfðu nægan tíma til að koma í veg fyrir árekstur og náðu að leiðrétta akstursferil eða flugferil sinn áður en hætta skapaðist.

Ný tilmæli frá FAA varða flokka A og B og þar kemur fram að flugvél, sem ætlar sér að þvera flugbraut í notkun í akstri, skuli ekki fara yfir flugbrautarbiðlínu fyrr en flugumferðarstjóri hefur gefið leyfi eftir að hafa séð með berum augum að önnur flugvélin sé farin framhjá þeim stað þar sem hin flugvélin ætlar að þvera yfir, hvort sem hún er í lendingu eða í flugtaki.

FAA tekur einn fram nokkur áríðandi atriði sem þarf að hafa í huga líkt og að hafa fulla athygli þegar hlustað er á flugumferðarstjórnina í radíóinu og vera mjög vel meðvitaðir um stöðu sína við flugbrautarbiðlínu.

Flugmenn eru hvattir til að halda sig innan við línuna og fara ekki yfir hana fyrr en heimild hefur komið frá flugturni og vera fullvissir um að ekki sé nein flugvél nálægt eða yfir þeim þegar þeir fara yfir eða inn á brautina og að engin flugvél sé á brautinni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga