flugfréttir

Tvær Boeing 767 breiðþotur lentu á Akureyri í morgun

- Gátu ekki lent í Keflavík vegna brautarskilyrða

7. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:53

Báðar vélarnar voru að koma frá Ameríku í morgun þegar ákveðið var að halda til Akureyrar vegna snjókomu á Keflavíkurflugvelli

Tvær Boeing 767 breiðþotur frá Icelandair þurftu frá að hverfa og lenda á Akureyri eldsnemma í morgun vegna veðurs í Keflavík og slæmrar brautarskilyrða en báðar vélarnar voru að koma úr Ameríkuflugi.

Mikil snjókoma var í morgun og var mikið fannfergi sem kyngdi niður sem skapaði mikið álag fyrir snjómokstursbílana við ryðja brauturnar.

„Það voru 6 til 7 vélar sem hringsóluðu í um hálftíma og tvær sem fóru beint til Akureyrar“, segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia í samtali við Alltumflug.is.

Náðu ekki að ryðja þá breidd sem Boeing 767 þarf vegna snjókomu

Snjókoman var hinsvegar það mikil að ekki náðist að ryðja nægilega mikla breidd á brautinni fyrir breiðþotur á borð við Boeing 767 sem er ástæða þess að þær voru einu vélarnar sem þurftu að fara til Akureyrar á meðan aðrar náðu að lenda.

Bremsuskilyrðin sjálf voru hinsvegar fín en erfiðlegar gekk að halda brautunum auðum þar sem það snjóaði mikið strax ofan í það sem búið var að ryðja.

Fyrri vélin (TF-ISW) var flug sem var að koma frá Seattle en um kl. 6:15, þegar vélin var í aðflugi að Keflavíkurflugvelli, hækkaði hún flugið og hélt norður yfir heiðar og lenti á Akureyrarflugvelli kl. 6:50.

Önnur Boeing 767 breiðþota Icelandair á Akureyrarflugvelli

Skömmu síðar fetaði TF-ISP, sem var að koma frá Boston, í fótspor Seattle-vélarinnar, en sú vél hafði þegar hringsólað í um 20 mínútur vestur af Keflavíkurflugvelli áður en hún flaug norður og lenti á Akureyri rúmum 15 mínútum síðar.

Seattle-vélin fór síðan í loftið frá Akureyri kl. 9:00 og Boston-vélin klukkan 10:32 og er önnur þeirra þegar farin áfram í næsta flug til Kaupmannahafnar og meðan hin fer til Amsterdam á eftir.

Hér að neðan má sjá skemmtilegar myndir af vélunum á Akureyrarflugvelli í morgun en það er ekki á hverjum degi sem breiðþotur lenda fyrir norðan.

Myndir: Isavia - Akureyri International Airport











  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga