flugfréttir

WOW comfy nýr valkostur í bókun hjá WOW air

8. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:38

Um borð í Airbus A330-300 breiðþotu WOW air

WOW air hefur kynnt nýjan valkost fyrir farþega er kemur að bókun á flugi en nú verður hægt að velja fjórar mismunandi leiðir á tegund bókunar í stað þriggja.

Nýi valkosturinn sem hægt er að velja þegar bókað er flug hjá félaginu heitir WOW comfy en í honum er innifalinn flugmiði, lítið veski, innrituð taska, handfarangur, forfallavernd og sæti með XL eða XXL sætabili en sala á WOW comfy mun hefjast á næstu dögum.

„Á síðasta ári kynntum við til leiks tvær nýjar þjónustuleiðir; WOW plus og WOW biz og fengu þær frábærar viðtökur frá farþegum okkar. Með auknum farþegafjölda og ólíkum viðskiptavinum með ólíkar þarfir sjáum við tækifæri að þróa þjónustu okkar enn frekar og bæta við fjórða valkostinum fyrir farþega okkar. Á þann hátt geta farþegar valið þá leið sem hentar þeim best hverju sinni,“ segir Engilbert Hafsteinsson framkvæmdastjóri sölu- og markaðssvið.

Í bókunarkerfi WOW air verður nú hægt að velja um fjórar mismunandi leiðir sem eru:

WOW basic – innifalið í verði er fargjald og lítið veski (t.d. lítill bakpoki, veski eða fartölvutaska).

WOW plus – innifalið í verði er fargjald, lítið veski, handfarangur 12 kg, innritaður farangur 20 kg og val á almennu sæti.

WOW comfy – innifalið í verði er flugmiði, lítið veski, handfarangur 12 kg, innritaður farangur 20 kg, forfallavernd og sæti með XL eða XXL sætabili.

WOW biz – innifalið í verði er fargjald, lítið veski, handfarangur 12 kg, innritaður farangur 20 kg, forfallavernd, breiðara sæti með meira sætabil (Big seat eða besta sæti í boði), hraðferð í öryggisleit á Keflavíkurflugvelli, forgangur um borð, máltíð og drykkur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga