flugfréttir
Dekk sprakk í hjólarými í farflugshæð á Dash-8-200
Bombardier Dash 8-200 flugvél Air Niuguni
Talið er að grjót á flugbraut hafi orðið til þess að dekk á aðalhjólabúnaði á flugvél af gerðinni Bombardier Dash 8-200 sprakk inn í hjólarými vélarinnar skömmu síðar þegar vélin var í farflugi.
Vélin, sem er frá flugfélaginu Air Niugini, var á leið frá Port Moresby til bæjarins
Tari í Papúa-Nýju Gíneu þann 4. ágúst sl. en þegar vélin var í 39 mílna fjarlægð
vestur af Port Moresby heyrðu flugmennirnir háværan hvell sem náði að hrissta
vélina til.
Annar flugmaðurinn hélt að um bilun í mótor væri að ræða en allir mælar sýndu
fram á að starfsemi mótoranna voru með eðililegum hætti.
Vélin brenndi upp eldsneyti áður en snúið var til baka til Port Moresby en það
var ekki fyrr en allir voru farnir frá borði sem að í ljós kom að annað dekkið
á vinstra hjólastelli var sprungið og skemmt.
Í rannsóknarskýrslu frá flugmálayfirvöldum í Papúa-Nýju Gíneu kemur
fram að dekkið hafi sprungið með hvelli inni í hjólarými hreyfilsins þegar
vélin var komin í 20.000 fet með þeim afleiðingum að skemmdir komu á hreyflahúsið
sjálft.
Vélin hafði áður flogið frá bænum Bulolo til Port Moresby en við skoðun á flugbrautinni komu í ljós hvassir steinhnullungar á flugbrutinni sem losnuðu úr jörðu
í kjölfar hvassviðris sem hafði gengið yfir völlinn en skemmdir eftir steinana á dekki vélarinnar
uppgötvuðust ekki við fyrirflugsskoðun á flugvellinum í Port Moresby.
Þrjátíu og einn voru um borð í vélinni er hún var á leið til Tari og sakaði engann.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.