flugfréttir
Íranir sjá fram á seinkun á fyrstu þotunum frá Boeing
Boeing 747 júmbó-þota Iran Air
Stjórnvöld í Íran gera ráð fyrir að seinkun verði á afhendingum á fyrstu farþegaþotunum frá Boeing sem pantaðar voru fyrir um ári síðan.
Iran Air pantaði í desember árið 2016 fimmtíu Boeing 737 MAX 8 þotur,
15 eintök af Boeing 777-300ER og fimmtán Boeing 777-9 þotur.
Fyrsta vélin sem til stóð að afhenda var Boeing 777-300ER þota en Iran Air
átti að taka við henni í apríl í vor.
Eins og staðan er núna bendir flest til þess að afhendingar muni ekki hefjast
fyrr en á fjórða ársfjórðungi þessa árs.
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, mun á morgun taka ákvörðun um það
hvort viðskiptaþvinganir á hendur Írani verða teknar upp aftur en ef slíkt
verður gert gæti það haft veruleg áhrif á stórar flugvélapantanir sem Íranir hafa lagt inn.
Írönsk stjórnvöld eiga inni pantanir í 180 þotur bæði hjá Boeing og Airbus
en pantanirnar eru metnar á hundruði milljarða króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.