flugfréttir

Dularfyllsta flugfélag heims auglýsir eftir flugliðum

11. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:56

Lítið er vitað um starfsemi flugfélagsins Janet Airlines og eru allir starfsmenn þess bundnir algjörum þagnareið

Janet Airlines, dularfyllsta flugfélag í heimi, er núna að ráða til sín flugfreyjur og flugþjóna en félagið flýgur starfsmönnum til Area 51 svæðisins sem lengi hefur verið tengt við geimverur og fljúgandi furðuhluti.

Mikil leynd hvílir yfir starfsemi Janet sem rekið er af fyrirtækinu AECOM sem er verktaki fyrir bandaríska flugherinn.

Janet hefur að minnsta kosti sex Boeing 737-600 (Classic) þotur í flota sínum en félagið er með höfuðstöðvar á McCarran-flugvellinum í Las Vegas.

Mjög líklegt er að flugliðarnir sem verða ráðnir verði bundnir hæsta þagnareið sem um getur vegna starfseminnar sem fram fer fram á herstöðinni á Area 51 og er því öll notkun á samskiptaforritum á borð við Instagram og Snapchat bönnuð.

Boeing 737-600 þotur Janet Airlines á McCarran-flugvellinum í Las Vegas

Vélarnar eru reknar af bandaríska flughernum en á dögunum var sett inn atvinnuauglýsing á vefsíðuna Aeck þar sem ríkisstjórn Bandaríkjanna óskar eftir að ráða nýjar flugfreyjur og flugþjóna um borð.

Þeir sem sækja um starfið þurfa að gefa upp ítarlegri upplýsingar um sín persónulegu mál en þegar sótt er um hjá venjulegum flugfélögum.

Meðal annars þarf að gefa upp upplýsingar um áfengisdrykkju, kynhneigð, geðheilsu auk þess bakgrunnur hvers og eins verður skoðaður gaumgæfilega.

Janet Airlines flýgur starfsmönnum daglega til Area 51 herstöðvarinnar







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga