flugfréttir

2.8 milljónir farþega flugu með WOW air árið 2017

- Eiga von á sjö nýjum þotum í ár

11. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:13

TF-SKY, Airbus A320neo þota WOW air, á flugvellinum í Tel Aviv

Árið 2017 flugu 2.8 milljónir farþega með WOW air sem er 69 prósent fleiri farþegar en flugu með félaginu árið 2016.

Sætanýting WOW air árið 2017 var 88% sem er sú sama og árið 2016. Framboðnum sætiskílómetrum fjölgaði um 80% milli ára.

WOW air flutti 214 þúsund farþega til og frá landinu í desember eða um 23% fleiri farþega en í desember árið 2016.

Flugfreyjur WOW air

Sætanýting WOW air í desember var 88% en sætanýting í fyrra á sama tímabili var 86%. Framboðnum sætiskílómetrum fjölgaði um 21% í desember frá því á sama tíma í fyrra.

24 þotur fyrir lok ársins 2018

Flugfloti WOW air verður 24 þotur í lok árs en félagið mun taka á móti sjö glænýjum þotum á árinu, þar af þremur innan örfárra mánaða. Tvær Airbus A321ceo, ein Airbus A321neo og fjórar breiðþotur Airbus A330-300neo en WOW air verður annað flugfélagið í heiminum til að taka á móti slíkum breiðþotum.

Þessar þotur eru næsta kynslóð Airbus A330 breiðþotna og eru þær sparneytnari en sambærirlegar breiðþotur annarra framleiðenda þökk sé meðal annars nýjum vængbúnaði sem hámarkar loftstreymisnýtni.

Þessar sjö vélar eru allar glænýjar, árgerð 2018 og koma beint frá verksmiðjum Airbus í Evrópu.

Gríðarlegur vöxtur árið 2017

„Árið 2017 hjá WOW air einkenndist af gríðarlegum vexti og fjárfestingum á öllum sviðum. Ég vil nota tækifærið og þakka okkar frábæra starfsfólki fyrir að standast það mikla álag sem fylgir því að vaxa 69% á milli ára“, segir Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri WOW air.

„Desember var sérstaklega góður og WOW air hefur aldrei verið betur í stakk búið til að ráða við áframhaldandi vöxt en við áætlum að um 3,7 milljónir farþega muni ferðast með okkur árið 2018. Einnig er ég mjög spenntur fyrir þeim nýjungum sem við erum að kynna á árinu; bæði nýjum áfangastöðum og ekki síst þjónustu til að gera WOW ferðalagið enn ánægjulegra fyrir okkar gesti“ segir Skúli.

Á árinu mun WOW air bæta við sig áætlunarflugi til Detroit, Cleveland, Cincinnati, St.Louis og Dallas. Félagið mun þá fljúga til 15 áfangastaða í Norður-Ameríku.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga