flugfréttir

Boeing 737 lenti næstum því á rangri flugbraut í San Francisco

- Þriðja atvikið á sex mánuðum á SFO

12. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:08

Boeing 737-800 þota frá AeroMexico í lendingu á flugvellinum í San Francisco

Litlu munaði að farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 frá mexíkóska flugfélaginu AeroMexico hefði lent á rangri flugbraut á flugvellinum í San Francisco í vikunni.

Vélin var að koma frá Mexíkóborg þann 9. janúar sl., og hafði flugumferðarstjóri gefið flugmönnum leyfi til að lenda á braut 28R.

Þegar vélin var í 1,6 kílómetra fjarlægð frá brautarendanum í 500 feta hæð tók flugumferðarstjóri eftir því að vélin hafði stillt sér upp í aðflug fyrir braut 28L sem liggur samsíða 28R en á þeirri braut var Airbus A320 þota frá Virgin America að bíða eftir flugtaksheimild.

Flugumferðarstjóri gerði flugmönnum AeroMexico-þotunnar viðvart og fóru þeir strax í fráflug (go around) og lenti vélin 15 mínútum síðar á réttri flugbraut.

Þetta er þriðja atvikið á hálfu ári sem upp kemur sambærilegt atvik á flugvellinum í San Francisco en þann 7. júlí sl. sumar var Airbus A320 þota frá Air Canada sem var næstum búin að lenda á akbraut (taxiway) á flugvellinum þar sem fjórar þotur voru að bíða eftir að komast í flugtak.

Þann 24. október sl. haust var önnur Airbus A320 þota, einnig frá Air Canada, sem heyrði ekki í flugturni eftir að flugumferðarstjóri hafði beðið flugmennina sjö sinnum um að hætta við lendingu og fara í fráflug.

Það atvik endaði með því að flugumferðarstjórar þurftu að gefa vélinni merki með ljósbyssu en þrátt fyrir ljósmerki, sem notuð eru ef fjarskipti nást ekki milli turns og flugvélar, þá lenti vélin samt sem áður á brautinni.

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) rannsaka nú atvikið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga