flugfréttir

Gangandi vegfarandi stytti sér leið yfir flugbrautina í Miami

- Sagðist vera ólæs og ekki skilið hvað stæði á viðvörunarskiltum

12. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 08:28

Maðurinn, sem hljóp yfir flugbrautina á flugvellinum í Miami, heitir Gregory Burnes og er 41 árs gamall

Karlmaður um fertugt í Flórída í Bandaríkjunum reyndi að stytta sér leið fótgangandi yfir flugvöllinn í Miami en talið er að hann hafi stökkva yfir grindverk flugvallarins eða komist í gegn um þjónustuhlið við flugvallarsvæðið.

Maðurinn hljóp því næst yfir 09 flugbrautina á MIA en tveir sjónarvottar gerðu flugvallarlögreglu viðvart sem veitti honum eftirför.

Ekki er nákvæmlega vitað hvernig manninnum tókst að komast inn á svæðið en einn sjónarvottur segist hafa séð hann klifra yfir grindverkið á meðan annar segir að hann hafi farið inn um hliðið og tekið stefnuna því næst yfir flugbrautina.

Í yfirheyrslum sagði maðurinn að hann væri ólæs og vissi ekki hvað stóð á viðvörunarskiltum sem vara alla óviðkomandi aðila við því að fara inn á flugvallarsvæðið.

Þá sagði maðurinn einnig að hann vissi ekki að það væri bannað að vera á flugbrautinni og þá hafði hann ekki hugmynd um að stranglega bannað væri að vera inn á flugvallarsvæðinu.

Maðurinn hefur verið færður í fangelsi og er hægt að fá hann lausan gegn 155.000 króna tryggingu.

Ekki kemur fram hvort að einhver flugvél hafi verið á brautinni eða hvort atvikið truflaði vélar í lendingu eða akstri.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga