flugfréttir
Eitt flugrekstarleyfi fyrir Alaska Airlines og Virgin America
Þann 25. apríl verða öll flug á vegum Virgin America flogin undir merkjum Alaska Airlines
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa gefið út sameiginlegt flugrekstarleyfi fyrir Alaska Airlines og Virgin America í kjölfar samruna félaganna tveggja.
Í fréttatilkynningu segir að gríðarleg vinna hafi farið í að samhæfa rekstur félaganna
beggja og undirbúa reksturinn til að fá eitt flugrekstarleyfi fyrir félögin en Alaska Airlines keypti
Virgin America í desember árið 2016.
Um 110 starfsmenn unnu að breytingunum í yfir 70.000 klukkustundir og er um að ræða 39 þúsund
blaðsíður af skjölum og 39 handbækur sem skrifaðar voru auk þess sem gerðar voru 1.500 breytingar
á verkferlum til að uppfylla kröfur FAA.
Alaska Airlines gerir ráð fyrir því að stjórnstöð Virgin America verði komin undir sama þak
í Seattle í mars í vor og verður rekstri beggja flugfélaganna þá stýrt þaðan.
Þá er unnið að því að sameina þjónustuver félaganna, tæknideild, bókunarkerfi auk annarra starfsemi
undir sama þak.
Þann 25. apríl verða öll flug á vegum Virgin America flogin undir merkjum Alaska Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.