flugfréttir
Rúmlega 200 atvinnuflugmenn hafa útskrifast frá Keili
- 28 atvinnuflugmannsnemar útskrifuðust frá Flugakademíu Keilis fyrir helgi
Þetta var í átjánda skiptið sem Keilir brautskráir nemendur úr atvinnuflugnámi skólans
Flugakademía Keilis útskrifaði 28 atvinnuflugnema við hátíðlega athöfn þann 12. janúar síðastliðinn en þetta var í átjánda skiptið sem Keilir brautskráir nemendur úr atvinnuflugnámi skólans og hafa þá samtals 203 atvinnuflugmenn útskrifast frá upphafi skólans.
Aukin aðsókn hefur verið í flugnám við skólann og hefur verið fullbókað í síðustu bekki í náminu en aldrei hafa fleiri einstaklingar lagt
stund á atvinnuflugmannsnám í Keili en nú.
Þá hefur Flugakademían bætt við flugvélakostinn og bætast fjórar fullkomnar kennsluvélar á árinu við þær tíu sem skólinn starfrækir nú þegar.
Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíu Keilis flutti ávarp og afhenti atvinnuflugmönnum prófskírteini ásamt Snorra Pál Snorrasyni skólastjóra Flugakademíunnar.
Sören Molbech Madsen fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í atvinnuflugmannsnámi með 9,75 í meðaleinkunn og fékk hann gjafabréf frá WOWair og bók frá Icelandair.
22 flugvirkjanemar útskrifuðust
Þá útskrifaði Flugakademían í fjórða sinn flugvirkjanema, en boðið er upp á námið í samvinnu við AST (Air Service Training) í Skotlandi. Rannveig Erla Guðlaugsdóttir, þjálfunarstjóri flugvirkjanáms, aðstoðaði við útskriftina. 22 nemendur útskrifuðust úr náminu að þessu sinni og fékk Bergur Sverrisson viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Fékk hann bókagjöf frá Isavia.
Með útskriftinni hafa samtals 68 nemendur lokið flugvirkjanámi við skólann. Davíð Ingi Jóhannsson, nemandi í flugvirkjanámi, flutti ræðu útskriftarnema fyrir hönd Flugakademíu Keilis. Hann hlaut einnig viðurkenningu frá deildinni fyrir góðan árangur og eljusemi og fékk bókagjöf frá Isavia.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.