flugfréttir
3 milljónir bókuðu flug með Ryanair í síðustu viku
- Metfjöldi bókana í sögu félagsins
Flestir farþegarnir sem bókuðu flug með Ryanair í síðustu viku eru á leið til Kanaríeyja
Ryanair tilkynni í dag að lágfargjaldafélagið hafi sett bókunarmet en aldrei áður hafa eins margir farþegar bókað flug á einni viku í sögu félagsins.
Fyrsta vikuna í janúar voru 3 milljónir sem bókuðu flug með félaginu á Netinu og munu þeir
farþegar fljúga með félaginu á næstu 20 vikum en þetta er í fyrsta sinn sem Ryanair rýfur 3 milljóna
bókunarmúrinn á einni viku.
Flestar af þessum 3 milljónum bókunum voru gerðar sl. miðvikudag (10. janúar) en flestir bókuðu
flug í sólina til Lanzarote og til Tenerife á Kanaríeyjum en í flokki borgarferða bókuðu
flestir til Porto, Mílanó og til Napólí.
Kenny Jacobs, talsmaður Ryanair, segir að 3 milljónir bókana á flugferðum jafngildi fimm bókunum á hverri sekúndna
í heila viku og er fjöldinn álíka og ef allir íbúar Madrídar hefðu bókað flug með félaginu.
Jacobs segir að þetta sé beinn árangur af markaðsherferð Ryanair sem nefnist „Always Getting Better“ sem
félagið kynnti árið 2014.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.