flugfréttir
Kýr á flugbraut olli röskun á Indlandi
Farþegaþota frá Etihad Airways þurfti að lenda í Bombay
Kýr, sem hafði komist inn á flugvallarsvæðið á flugvellinum í borginni Ahmedabad á Indlandi, olli töluverðri röskun á flugi í seinustu viku.
Svo virðist sem að grasið hafi veri aðeins grænna hinumegin við grindverkið á Sardar Vallabhbhai Patel
flugvellinum fyrir kúnna en talið er að hún hafi náð að grafa sig undir girðingu vallarins til að komast inn á svæðið.
Flugumferðarstjórar komu auga á kúnna þar sem hún gekk yfir flugbrautina en fimm flugvélar urðu að hætta við lendingu og tvær þotur, ein frá Etihad Airways og ein fraktflugvél, þurftu að halda til Bombay og lenda þar.
Kýrin lét öllum illum látum þegar tilraunir voru gerðar til að reka hana af flugvallarsvæðinu en talið er að hún
hafi komist inn við fraktflugsmiðstöðina á vellinum.
Það tók hátt í klukkustund að koma dýrinu af flugvellinum en kýr eru heilagar á Indlandi og fá að ganga
um frjálsar bæði í borgum og í sveitum.
Þess má geta að reglulega verður árekstur milli flugvéla og kúa á flugvöllum á Indlandi auk annarra dýra en
í fyrra voru yfir 1.000 atvik skráð á Indlandi þar sem flugvélar lentu í árekstri við fugla og önnur dýr í nágrenni flugvalla.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.