flugfréttir
EasyJet tekur á leigu tvær fjögurra hreyfla BAe 146 þotur
D-AMGL flaug sitt fyrsta flug fyrir easyJet þann 11. janúar
EasyJet hefur tekið á leigu tvær farþegaþotu af gerðinni British Aerospace 146 en vélarnar er teknar á leigu frá þýska flugfélaginu WDL Aviation sem mun sjá um flugreksturinn fyrir hönd easyJet.
EasyJet mun nota vélarnar í innanlandsflugi í Þýskalandi og í Austurríki en um mjög ólíka flugvél er að ræða
miðað við flugflota easyJet sem samanstendur eingöngu af farþegaþotum úr Airbus A320 fjölskyldunni.
Vélarnar verða staðsettar í Köln og í Zurich en seinustu daga hafa þær flogið nú þegar nokkrar flugferðir
til Tegel-flugvallarins í Berlín.
Önnur BAe 146 vélin, sem er af gerðinni BAe 146-200, var smíðuð árið 1986 og hin, sem er af gerðinni
BAe 146-300, var smíðuð árið 1989.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.