flugfréttir

Zambia Airways mun fljúga á ný eftir 24 ára hlé

- Ethiopian Airlines mun aðstoða við stofnun félagsins

17. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:13

McDonnell Douglas DC-10 breiðþota Zambia Airways á flugvellinum í Jóhannesarborg

Zambia Airways ætlar að hefja sig aftur á loft en flugfélagið varð gjaldþrota fyrir 24 árum síðan.

Ethiopian Airlines hefur gert samning við ríkisstjórnina í Zambíu um að aðstoða við að koma flugfélaginu aftur á fót en ríkisstjórn landsins mun eiga 55% hlut í Zambia Airways á meðan Ethiopian Airlines mun eiga 45 prósent.

Með þessu mun Ethiopian Airlines tryggja sér markaðshlutdeild í sunnanverði Afríku og íbúar landsins munu fá aðgang að bættari flugsamgöngum til annara landa í gegnum flugvöllinn í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu.

Stefnt er á að Zambia Airways muni hefja innanlandsflug og flug til nærliggjandi svæða fyrst um sinn áður en félagið snýr sér að millilandaflugi.

Zambia Airways, sem var ríkisflugfélagið í Zambíu, var stofnað árið 1964 og hafði félagið ýmsar tegundir flugvéla í flota sínum áður en það varð gjaldþrota á borð við vélar eins og Boeing 707, Douglas DC-8, Boeing 737-200, DC-10, BAC One-Elven auk annarra véla.

Zambia Airways flaug meðal annars til John F. Kennedy flugvallarins í New York, til Frankfurt auk áfangastaða á borð við Róm, Bombay og fjölda áfangastaða í Afríku en félagið varð gjaldþrota árið 1994.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga