flugfréttir

Ryanair aftur komið með áhuga fyrir Niki

17. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:11

Airbus A320 þota Niki

Ryanair hefur aftur fengið áhuga fyrir því að eignast austurríska flugfélagið Niki en félagið hefur staðfest að það hafi haft samband við austurrísku gjaldþrotanefndina og lýst yfir áhuga á að taka yfir eignir félagsins.

Ryanair var eitt af fyrstu flugfélögunum sem gerðu tilboð í Niki þegar félagið hætti starfsemi sinni um miðjan desember í kjölfar gjaldþrots Air Berlin en Ryanair dró skömmu síðar tilboð sitt til baka.

Fram kemur að Ryanair hafi ákveðið að bjóða aftur í félagið eftir að dómstóll í Korneuburg í Austurríki ákvað að hefja uppboðsferilinn upp á nýtt og frá grunni í kjölfar máls sem kom upp þar sem fyrirtæki sem berst fyrir réttindum farþega hótaði lögsókn þar sem skiptin á þrotabúinu átti að fara fram af dómara í Þýskalandi í stað Austurríkis.

Við þá breytingu hefur dregið úr líkum á því að tilboð IAG (International Airlines Group) nái fram að ganga og ákvað Ryanair því að freista þess að bjóða aftur í Niki.

IAG var fyrir áramót komið mjög nálægt því að eignast eigur Niki og ætlaði félagið að sameina flugfélagið austurríska við starfsemi spænska lágfargjaldafélagsins Vueling.

IAG segist hafa enn áhuga á að ljúka kaupferlinu og ná með því að bjarga um 740 störfum innan Niki.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga