flugfréttir

SAS velur Airbus í stað Boeing

- Verða eingöngu með Airbus-þotur í framtíðinni

17. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 18:42

Airbus A320neo þota SAS

SAS (Scandinavian Airlines) hefur slitið viðræðum við Boeing um nýja farþegaþotupöntun og hafið lokaviðræður við Airbus um pöntun sem sögð er vera í stærri kantinum.

Sagt er að SAS sé að horfa á þotur úr Airbus A320neo fjölskyldunni en félagið hefur bæði Boeing 737 þotur í flotanum og Airbus A320 og hefðu því báðar tegundirnar komið til greina.

„Það er okkur ánægja að geta tilkynnt að við eigum í lokaviðræðum við Airbus, og er stefnt að því að ljúka viðræðum með undirritun í vor um stóra pöntun í meðalstórar farþegaþotur“, segir í tölvupósti sem SAS sendi starfsmönnum sínum í gær.

SAS hefur í langan tíma verið að gera upp á milli Boeing 737 MAX og Airbus A320neo en yfirmenn SAS hafa ekki tekið fram hversu margar þotur til standi að panta.

Boeing 737 þoturnar munu fara úr flotanum

Nýju vélarnar eiga að leysa af hólmi allar þær sjötíu Boeing 737 þotur sem SAS hefur í flota sínum sem eru af gerðinni Boeing 737-600, Boeing 737-700 og 737-800.

Það er því ljóst að Boeing-vélarnar munu kveðja flota SAS innan fárra ára og verður félagið því eingöngu með þotur frá Airbus.

Þá hefur félagið einnig Bombardier CRJ900 þotur en þær eru í eigu Cimber og CityJet og munu fara úr flotanum í vor.

SAS hefur í dag fengið 12 Airbus A320neo þotur afhentar og á eftir að afhenda níu til viðbótar en þá á félagið enn eftir að fá fyrstu Airbus A350-900 þotuna sem félagið fær árið 2019.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga