flugfréttir
Gulfstream hættir framleiðslu á G-IV eftir 30 ára smíði
- Síðasta G450 var afhent fyrir helgi
Gulfstream G450 einkaþotan kom á markaðinn árið 2005
Gulfstream hefur tilkynnt að framleiðandinn hafi afhent seinasta eintakið af Gulfstream G450 einkaþotunni og endar þar með 30 ára löng smíði á GIV kynslóðinni af einkaþotunum.
Síðasta eintakið var afhent þann 19. janúar sl. en Gulfstream G450 kom á markaðinn árið 2005
en fyrsta einkaþotan af þessari tegund var Gulfstream IV og kom hún á markaðinn árið 1985.
Alls fékk Gulfstream pantanir í 360 eintök af G450 einkaþotunni á 12 ára tímabili en pöntunum tók að fækka eftir að Gulfstream 500
var kynnt til leiks árið 2014 en sú vél átti að koma á markað fyrir áramót en afhendingum hefur seinkað
fram á vor.
Gulfstream segir að framleiðslunni á G450 hefur nú verið hætt á sama tíma og verið er að setja allt á fullt
með smíði Gulfstream G500.
Gulfstream G500 kemur með stærra farþegarými, „fly-by-wire“ stjórntækni og PW800 hreyfla
frá Pratt & Whitney og mun vélin hafa flugdrægi upp á 9.630 kílómetra á hraðanum Mach 0.85.
Fimm G500 einkaþotur hafa verið smíðaðar sem gangast núna undir flugprófanir og er vonast til þess
að vélin fái flughæfnisvottun með vorinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.