flugfréttir
Flugmenn Ryanair samþykkja 20 prósenta launahækkun
- Segja þá verða með 20% hærri laun í febrúar en flugmenn Norwegian
Flugvélar Ryanair
Ryanair hefur tilkynnt að allir flugmenn félagsins, á öllum þeim 15 starfsstöðvum í Bretlandi, ásamt þeim sem starfa á London Stansted, hafa samþykkt tilboð félagsins um 20 prósenta launahækkun í leynilegri kosningu sem fram fór nýlega.
Kauphækkunin mun taka í gildi eftir helgi en flugmenn Ryanair á Írlandi, að meðtöldum
öllum flugmönnum í Cork og á Shannon, hafa einnig
samþykkt hækkunina.
Erfiðlega gengur þó að semja við þá flugmenn Ryanair sem starfa í Dublin þar sem um þriðjungur þeirra eru ekki tilbúnir að samþykkja launahækkunina en viðræður standa yfir við 35% flugmanna sem hafa kosið á móti tilboði félagsins.
Ryanair segir að með launahækkuninni séu flugmenn félagsins með allt að 20 prósent hærri laun samanborið
við aðra starfsbræður þeirra á borð við flugmenn Norwegian sem fljúga einnig Boeing 737 þotum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.