flugfréttir

British Airways sagt í viðræðum um kaup á nýjum A380 risaþotum

21. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 22:05

Airbus A380 risaþota British Airways

Svo virðist sem að British Airways hafi áhuga á að fá fleiri Airbus 380 risaþotur í flotann en sagt er að Airbus eigi í viðræðum við flugfélagið breska um fleiri risaþotur.

British Airways hefur í dag tólf Airbus A380 risaþotur í flotanum en félagið hefur áður lýst yfir áhuga á að taka inn allt að sjö notaðar risaþotur til viðbótar ef þær eru fyrir hendi á markaðnum.

Samkvæmt heimildarmönnum, sem kunnugir eru málinu, þá er British Airways nú að íhuga að taka nýjar Airbus A380 í stað þess að taka notaðar vélar.

John Leahy, fráfarandi sölustjóri Airbus, hafði greint frá því í seinustu viku að hann væri sannfærður um að hann myndi ná einni pöntun í risaþotuna til viðbótar á þessu ári eftir pöntun Emirates sem lagði inn pöntun í allt að 36 risaþotur sl. fimmtudag.

Að sögn aðila, sem vilja ekki koma fram undir nafni, þá er sá viðskiptavinur British Airways og eru viðræður í gangi um mögulega pöntun.

British Airways er sagt hafa þörf fyrir fleiri risaþotur þar sem þær taka mjög marga farþega í hverju flugi um Heathrow-flugvöllinn í London sem er orðin mjög þéttsetinn.

Fram kemur að British Airways hafi skipt um skoðun við að panta notaðar Airbus A380 risaþotur þar sem félagið telur það vera of dýrt að breyta og endurinnrétta farþegarými á notaðri risaþotu og sé hagkvæmara að panta nýjar Airbus A380.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga