flugfréttir
Noregur stefnir á rafknúið innanlandsflug fyrir árið 2040
Frá Gardermoen-flugvellinum í Osló
Noregur stefnir að því að verða fyrsta landið í heimi til að hafa eingöngu rafknúnar farþegaflugvélar á stuttum flugleiðum í innanlandsflugi fyrir árið 2040.
Avinor, flugvallarfyrirtækið í Noregi, sem sér um flugleiðsögu í landinu og rekstur norskra flugvalla, ætlar sér að taka stórt skref
á sviði rafmagnsflugvéla og gera landið að brautryðjandi í rafknúnum flugsamgöngum en nú þegar eru nokkur fyrirtæki
í heiminum að þróa flugvélar sem munu ganga fyrir rafmagni.
Þrátt fyrir að ekkert land í Evrópu framleiði eins mikla olíu og Noregur þá er hvergi að finna eins mikla notkun á rafbílum
og í landinu en yfir helmingur allra nýrra bíla í Noregi eru annað hvort rafmagnsbílar eða „hybrid“ bílar.
„Við teljum að hægt verði að fljúga öll flug, sem eru innan við eina og hálf klukkustund í flugtíma, með rafmagnsflugvélum“, segir
Dag Falk-Petersen, framkvæmdarstjóri Avinor, sem bæði hefur flogið farþegaþotum og þar áður orrustuþotum í norska flughernum.
Tölvugerð mynd af E-Fan X_Hybrid flugvélinni sem er í þróun hjá Airbus í samstarfi við Siemens
Avinor ætlar sér að hefja tilraunir með rafmagnsflugvélum í farþegaflugi árið 2025 og verður á næstunni
opnað fyrir útboð í slíkar prófanir og þá með flugvélum sem taka allt að 19 farþega.
„Þegar við munum ná okkar markmiði þá verða flugsamgöngur ekki lengur vandamál
er kemur að loftslagsbreytingum, heldur lausnin“, segir Falk-Petersen.
Flugsamgöngur í innanlandsflugi telja um 2,4% af þeim útblæstri á kolefnum sem á sér
stað í Noregi en millilandaflug telur tvöfalt meira vægi.
Þá er gert ráð fyrir að rafknúnar samgöngur muni draga úr hávaðamengun og einnig
draga úr rekstrarkosnaði fyrir flugfélög.
Bæði Boeing og Airbus eru að vinna að þróun á rafknúnum flugvélum en Airbus ákvað
að hefja þróun á blandaðri tækni er kemur af aflgjafa í stað þess að einblína á flugvél
sem væri eingöngu knúin áfram með rafmagni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.