flugfréttir
Etihad Cargo leggur öllum Airbus A330-200F fraktþotunum
Airbus A330-200F fraktþota Etihad Airways
Etihad Airways hefur lagt öllum fimm Airbus A330-200F fraktþotunum sínum og hafa þær verið settar í geymslu.
Etihad Airways segir að félagið sé ekki hætt með vélarnar og
sé félagið enn að fljúga sérstakt fraktflug án þess að svara fyrirspurn varðandi ástæðu
þess að vélunum hefur verið lagt.
„Það er hefðbundin regla að endurskoða starfsemi félagsins og flotaþörf hverju sinni
eftir eftirspurn“, segir í tilkynningu frá félaginu.
Etihad Cargo, dótturfélag Etihad Airways, hefur einnig fimm Boeing 777F fraktþotur
en þær eru enn í notkun í leiðarkerfi félagsins.
Etihad Cargo hefur notað Airbus A330-200F fraktþoturnar eingöngu í fraktflugi
til áfangastaða í Evrópu, á Indlandi, í Asíu og einnig í flugi til Afríku.
Félagið fékk fimmtu Airbus A330-200F fraktþotuna afhenta frá Airbus í febrúar 2017.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.