flugfréttir

Stærsti samningur Icelandair við íþróttahreyfinguna til þessa

- Icelandair áfram aðalstyrktaraðili ÍSÍ og GSÍ, HSÍ, ÍF, KKÍ og KSÍ

23. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:39

Frá undirritun samningsins í dag í þjálfunarsetri Icelandair í Hafnarfirði.

Í gær endurnýjaði Icelandair samning um að vera aðalstyrktaraðili Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og fimm sérsambanda innan þess, þ.e. GSÍ, HSÍ, ÍF, KKÍ og KSÍ en þessir styrktarsamningar milli flugfélagsins og ÍSÍ eru þeir umfangsmestu í sögu íþróttahreyfingarinnar.

Samningurinn felur í sér víðtækt samstarf Icelandair og þessara íþróttasambanda. Meðal annars getur landsliðsfólk á vegum ÍSÍ í öllum aldursflokkum kvenna og karla nýtt sér áætlunarflug Icelandair til yfir 50 áfangastaða í Norður-Ameríku og Evrópu.

„Samstarf ÍSÍ og Icelandair hefur verið afar farsælt í áratugi og erum við hæst ánægð með að hafa nú tryggt áframhaldandi samstarf fram yfir Ólympíuleikana í Tókýó árið 2020. Stuðningur Icelandair við íþróttahópa ÍSÍ og landslið sérsambanda á ferðalögum til og frá keppni hefur verið ómetanlegur, ekki síst í kringum stór alþjóðleg mót og Ólympíuleika. Víðtækt leiðakerfi Icelandair gerir okkur auðvelt að komast á hagkvæman og öruggan hátt á milli staða“, segir Lárus L. Blöndal.

„Við hjá Icelandair erum mjög stolt að halda ánægjulegu samstarfi við ÍSÍ áfram. Íslendingar eiga afreksfólk á heimsmælikvarða í nánast öllum greinum og það er okkur sönn ánægja að geta staðfest áframhaldandi stuðning við margar af fyrirmyndum Íslands. Íþróttir eru mikill drifkraftur ferðalaga um allan heim, ekki síst í ár þegar margir munu leggja leið sína til Rússlands eða fylgjast með okkar bestu kylfingum,“ segir Björgólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Icelandair.

Þúsundir einstaklinga ferðast árlega um allan heim með Icelandair til að upplifa íþróttatengda viðburði. „Ekki er hægt að hugsa sér betri fulltrúa Íslands en íþróttafólkið okkar. Þau vekja athygli úti í heimi og eru frábær kynning á landinu,“ segir Björgólfur.

Til að fagna farsælu samstarfi enduðu forystumenn Icelandair og íþróttasambandanna samkomuna á því að renna sér niður öryggisrennu en fundurinn átti sér stað í þjálfunarsetri Icelandair í Hafnarfirði.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga