flugfréttir
ATR fékk þrefalt fleiri pantanir árið 2017
Ný ATR 72-600 flugvél
Flugvélaframleiðandinn ATR fékk þrisvar sinnum fleiri pantanir í nýjar flugvélar árið 2017 samanborðið við árið þar á undan.
Í fyrra fékk ATR pantanir í 113 farþegaflugvélar en allar pantanirnar voru í ATR 72-600 fyrir eitt eintak
sem pantað var af ATR 42-600 vélinni.
Stærstu pantanirnar komu frá FedEx, sem pantaði í fyrra fimmtíu ATR 72-600F fraktvélar, IndiGo sem pantaði 30 flugvélar
og Iran Air sem pantaði tuttugu ATR 72-600 flugvélar.
Þá bárust einnig pantanir frá Mandarin Airlines, Air Senegal, Air Tahiti, Bahamasair, BRA og Japan Air Commuter.
ATR er ennþá stærsti flugvélaframleiðandi í heimi er kemur að farþegaflugvélum sem taka færri en 90 farþega en í fyrra
seldi framleiðandinn flugvélar til hverrar einustu heimsálfu að Suðurskautslandinu undanskildu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.