flugfréttir

Þrjár tegundir breiðþotna til skoðunar hjá American

- Airbus A330neo, A350 og Dreamliner kemur til greina fyrir American

25. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 22:05

Dreamliner-þota American Airlines

American Airlines er með þrjár breiðþotur frá Boeing og Airbus til skoðunar sem kemur til greina að panta.

American Airlines á nú þegar von á Airbus A350 þotum af gerðinni A350-900 en til greina kemur að breyta þeirri pöntun að hluta til í Airbus A330-900neo þotuna eða taka í staðinn fleiri Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-9.

Flugfélagið bandaríska pantaði í september í fyrra 22 þotur af gerðinni Airbus A350-900 en þá sagði Doug Parker, framkvæmdarstjóri félagsins að annað hvort myndi félagið taka fleiri A350 þotur eða panta fleiri af annarri gerð.

Parker segir að 22 breiðþotur sé of lítið fyrir American Airlines sem skortir nú þegar fleiri breiðþotur í leiðarkerfið en félagið hefur nú þegar fjórar mismunandi tegundir af breiðþotum í flotanum; Boeing 767, Boeing 777, Boeing 787 og Airbus A330.

Airbus A330-900neo hefur sömu tegundaráritun og Airbus A330 sem félagið segir skynsamlegan kost auk þess sem fleiri tegundir af Dreamliner-þotunni kemur til greina þar sem félagið hefur nú þegar fengið afhent 34 eintök af þeirri vél.

American Airlines fékk pantanirnar í Airbus A350 til sín með yfirtökunni á US Airways árið 2013 en félagið hefur nokkrum sinnum síðan þá gert breytingar á pöntuninni .







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga