flugfréttir
Wizz Air sýnir Alitalia áhuga
- Hafa áhuga á að taka yfir minni farþegaþotur félagsins
Wizz Air er nýjasta flugfélagið til að sýna áhuga á yfirtöku á ítalska flugfélaginu Alitalia
Ungverska lágfargjaldafélagið Wizz Air hefur sýnt áhuga á að kaupa og taka yfir rekstur Alitalia er snýr að stuttum flugleiðum.
„Við erum aðallega að skoða þann hluta Alitalia er við kemur stuttum og meðallöngum flugleiðum. Allavega kemur
langflugsflotinn ekki til greina fyrir okkur“, segir József Váradi, framkvæmdarstjóri Wizz Air.
Alitalia hefur 72 þotur í flota sínum úr Airbus A320 fjölskyldunni sem eru af gerðinni Airbus A319, Airbus A320 og A321 en
Wizz Air hefur sömu tegundir af þotum í sínum flota fyrir utan Airbus A319.
Lufthansa hefur gert tilboð í Alitalia en ríkisstjórnin á Ítalíu er þó treg til þess að samþykkja áætlunar
flugfélagsins þýska sem vill skera stórlega niður í starfsmannafjölda þess ef félagið tekur yfir Alitalia.
Þá hefur easyJet einnig gert tilboð í rekstur Alitalia auk bandaríska fjárfestingarfyrirtæksins Cerberus og þá hefur Air France-KLM fengið aðgang að yfirtökuviðræðunum.
Til stendur að ganga frá kaupunum á Alitalia áður en ítölsku þingkosningarnar fara fram þann 4. mars næstkomandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.