flugfréttir
Eastern Air Lines hættir við pöntun í tuttugu MRJ-þotur
Tölvugerð mynd af Mitsubishi Regional Jet (MRJ) þotunni í litum Eastern Air Lines
Eastern Air Lines hefur hætt við allar þær tuttugu Mitsubishi Regional Jet (MRJ) þotur sem félagið pantaði árið 2014.
Þetta samsvarar 10% af öllum þeim vélum sem pantaðar hafa verið hjá japanska flugvélaframleiðandanum
en alls hafa sjö viðskiptavinir pantað samtals 213 eintök af vélinni með möguleika á 184 þotum til viðbótar.
Eastern Air Lines var stofnað árið 2011 og hóf félagið flugrekstur árið 2015 undir sama nafni og gamla flugfélagið
sem var eitt sinn á stalli með stærstu flugfélögum Bandaríkjanna.
Nýja Eastern Air Lines flaug sitt síðasta flug í september í fyrra og keypti Swift Air allan rekstur félagsins og
skilaði Eastern Air Lines flugrekstarleyfinu sínu í kjölfarið.
Yugo Fukuhara, varaformaður Mitsubishi Aircraft, segist efast um að afbókunin hafi nein teljandi áhrif
á framleiðsluna á MRJ þotunni.
Til stóð að afhenda fyrstu þoturnar til Eastern Air Lines árið 2019 en nú opnast fleiri framleiðslupláss sem þýðir
að önnur flugfélög munu fá fyrstu vélarnar afhentar fyrr.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.