flugfréttir

Ferðakaupstefnan Icelandair Mid-Atlantic fer nú fram

26. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:41

Ferðakaupstefnan Icelandair Mid-Atlantic er sú stærsta sinnar tegundar sem haldin er á Íslandi

Ferðakaupstefnan Icelandair Mid-Atlantic, sem nú er haldin í 26. skipti, er stærsta ferðakaupstefna sem haldin er á Íslandi.

Kaupstefnan er haldin í Laugardalshöllinni á vegum Icelandair til þess að tengja saman kaupendur og seljendur ferðaþjónustu í þeim tilgangi að styrkja og auka ferðamannastraum til Íslands og er hún er árlegur lykilviðburður í ferðaþjónustunni.

Ferðamálaráðherra og forystumenn ferðamála á Íslandi hittu í dag fulltrúa á Icelandair Mid-Atlantic sem alls eru um 800 en af þeim koma um 450 frá 21 landi sem hafa mikil ferðaþjónustutengsl við Ísland í Evrópu og Norður-Ameríku og einnig frá fjarlægari mörkuðum.

Nýir þátttakendur koma m.a. nýjum áfangastöðum Icelandair á þessu ári, eins og t.d. frá borgunum Cleveland og Dublin. Vel á annað hundrað íslensk ferðaþjónustufyrirtæki víðs vegar að af landinu eru meðal þátttakenda og nýta þetta tækifæri til að kynna vöru sína og þjónustu. Alls eru rúmlega 240 sýningarbásar settir upp í Laugardalshöllinni og í þeim munu fara fram á sjötta þúsund bókaðir fundir milli viðskiptaaðila í dag.

Þátttakendur eru fulltrúar ferðaskrifstofa, hótela, bílaleiga, skemmtigarða og margvíslegra annarra ferðaþjónustufyrirtækja og að auki taka þátt opinber ferðamálaráð ýmissa þeirra svæða og borga sem Icelandair flýgur til í Norður-Ameríku og Evrópu.

“Þessi kaupstefna er einn helsti vettvangur ferðaþjónustunnar til að mynda tengsl við samstarfsaðila og kynna vöru sína beint fyrir kaupendum hennar. Mikill árangur og vöxtur ferðaþjónustunnar undanfarin ár er ekki tilviljun, heldur byggir á því að hafa frumkvæði að því að skapa ný viðskiptatækifæri. Kröftug þátttaka innlendra og erlendra aðila á Icelandair Mid-Atlantic er þess vegna mjög ánægjuleg”, segir Guðmundur Óskarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair.

Á meðfylgjandi myndum eru (1) Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra, Jón Ásbergsson framkvæmdastjóri Íslandsstofu, Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferðamálastjóri og Guðmundur Óskarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair, Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra að ganga um sýninguna.









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga