flugfréttir
Rúmur metri skildi að dróna og Airbus A321 þotu í aðflugi
Flugvélar í aðflugi að London Heathrow
Rannsóknarnefnd flugslysa í Bretlandi hafa greint frá því að skoðun fór fram á einni farþegaþotu eftir nálægð við dróna í aðflugi að Heathrow-flugvellinum í London.
Atvikið átti sér stað þann 27. október 2017 en flugmenn vélarinnar voru vissir um að dróninn hafi skollið á vélinni sökum þess hversu
nálægt hann var.
Um þotu af gerðinni Airbus A321 var að ræða og er greint frá því að dróninn hafi farið framhjá framrúðu stjórnklefans, þeim
megin sem aðstoðarflugmaðurinn situr, og er talið að um 1.5 metri hafi skilið að drónann og rúðu flugvélarinnar.
„Flugmennirnir töldu að dróninn hafi farið það nálægt að hann hafi sennilega skollið á stélinu“, segir í nýlega útgefinni
skýrslu varðandi málið.
Ekki var gefið upp frá hvaða flugfélagi vélin var en í kjölfar skoðunar fundust engar skemmdir eða nein ummerki
um árekstur við aðskotahlut.
Þá hafa verið gefnar út niðurstöður úr skýrslum í kjölfar tveggja atvika vegna nálægðar við dróna sem áttu sér stað nálægt
flugvellinum í Manchester í nóvember í fyrra en þar áttu í hlut Airbus A320 þota og Dornier 328 flugvél.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.