flugfréttir
Fimm ný flugfélög hefja rekstur í Pakistan á þessu ári
- Gæti þyngt róður ríkisflugfélagsins PIA enn frekar
Frá flugvellinum í Lahore í Pakistan
Hvorki meira né minna en fimm ný flugfélög munu hefja flugrekstur á þessu ári í Pakistan en það mun setja mikla pressu á ríkisflugfélagið PIA (Pakistan International Airlines) um að standa sig í stykkinu og á félagið nú þegar á brattann að sækja.
Breytingar á reglugerðum um rekstur flugfélaga og frjálsar loftferðir í Pakistan hafa greitt leiðina og opnað fyrir aukna samkeppni og eru nú fimm ný flugfélög sem hafa boðað komu sína á markaðinn þar í landi.
Félögin fimm heita Askari Air, Air Siyal, Go Green, Liberty Air og Afeef Zara Airways og munu félögin öll berjast um að fá sneið
af kökunni en á seinustu 5 árum hefur flugfarþegum fjölgað um 40% í Pakistan og eru í dag um 20 milljónir sem fljúga
um pakistanska flugvelli árlega.
Flugfélögin fimm munu flest þjóna flugvöllum í minni borgum og bæjum í landinu en íbúar Pakistans telja 209 milljónir.
Innanlandsflugið í landinu hefur aukist um 10% sem er sex prósentustigum meiri aukning en á sér stað í millilandafluginu
árlega í Pakistan.
Töluverð samkeppni hefur átt sér stað að undanförnu sem hefur þau áhrif að fargjöld hafa lækkað til muna í landinu og er meðalverð á flugmiða
í pakistönsku innanlandsflugi um 9.000 krónur en án samkeppninnar er talið að meðalflugmiði myndi kosta um 27.000 krónur
aðra leiðina.
Önnur flugfélög í Pakistan sem hafa verið leiðandi í áætlunarflugi fyrir utan ríkisflugfélagið PIA eru Airblue, Shaheen Air og SereneAir
en annað af þeim var stofnuð í fyrra og það þriðja árið 2016.
PIA (Pakistan Internationl Airlines) hafði eitt sinn 48 flugvélar í flota sínum á árum áður en þeim fækkaði niður í 18 flugvélar þegar
minnst var en í dag er flotinn komin í 35 flugvélar.
„PIA er ekki flugfélag heldur starfsmannaskrifstofa fyrir stjórnmálaflokkana í Pakistan sem setja menn á launaskrá hjá félaginu til að fá sitt atkvæði“, segir Yahya Polani, fyrrverandi forstjóri hjá ferðamálaráðinu í Pakistan.
Shaheen Air, sem er annað stærsta flugfélagið í landinu, hefur 20 flugvélar og 2.000 starfsmenn á meðan á meðan PIA hefur
35 flugvélar og 15.000 starfsmenn.
„PIA hefur hlutfallslega 450 starfsmenn á hverja flugvél í flotanum á meðan Emirates hefur 150 starfsmenn á hverja flugvél. Það
er auðséð hver er að fara tapa þessari samkeppni“, segir Polani.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.