flugfréttir

23 Afríkulönd gera sáttmála um frjálsar flugsamgöngur

- Gæti stuðlað að 30% lægri flugfargjöldum í álfunni

30. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:35

Flugvélar South African Airways og Kenya Airways

Tuttugu og þrjú Afríkulönd hafa gert sáttmála um að opna lofthelgina yfir Afríku og mynda frjálsar flugsamgöngur líkt og í Evrópu í þeim tilgangi að efla flugiðnaðinn í álfunni.

Meðal aðildarlanda eru meðal annars Suður-Afríka, Nígería og Kenýa og er vonast til að með þessu verði hægt að lækka flugfargjöld og gera flugumhverfið í Afríku hagkvæmara en í dag er talið að Afríka sé eitt óhagkvæmasta og dýrasta svæði heims til að fljúga um fyrir flugfélög vegna þeirra sáttmála sem ríkja um flug milli landanna.

Framkvæmdarstjórar helstu flugfélaga í Afríku fagna niðurstöðunni en segja að enn sé langt í land áður en búið verður að koma á frjálsum flugsamgöngum og sé töluverð vinna framundan í samstarfinu.

Íbúar Afríku telja um 15% af mannkyninu en flugiðnaðurinn í álfunni telur hinsvegar aðeins 3 prósent af allri þeirri flugumferð sem á sér stað í heiminum samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO).

Flugsamgöngur milli tveggja landa í Afríku eru oft erfiðar og oftast er hagkvæmasti kosturinn að fljúga frá einu Afríkulandi til annars með því að fljúga í gegnum Evrópu eða Miðausturlönd.

Flugsamgöngur í Afríku er lúxus en sjálfsagður hlutur í Evrópu

„Flugið er lúxusþjónusta í Afríku en í Bandaríkjunum og í Evrópu geta allir stokkið hvert sem er yfir eina helgi. Það er það sem við viljum líka“, segir David Kajange, yfirmaður ferðamálaráðs Afríku.

Samkvæmt skýrslu, sem Afríkudeild innan ICAO lét gera árið 2015, þá kom í ljós að ef Afríka væri undir sameiginlegum loftferðasamningum þá væri hægt að lækka flugfargjöld í álfunni um 35% og með því væri einnig hægt að laða að fjárfesta til að gera reksturinn enn betri fyrir mörg flugfélög.

Umræðan um frjálsar flugsamgöngur í Afríku er ekki ný af nálinni en samþykkt varðandi þessi mál var gerð árið 1988 er 44 lönd í Afríku gerðu með sér Yamoussoukro-samkomulagið sem kveður á um frelsi í flugsamgöngum en samþykktin hefur ekki verið innleidd fyrr en núna fyrst, 30 árum síðar.

„Til að koma á einum markaði fyrir öll löndin er kemur að lofthelgi þá verða hin löndin í Afríku að vera með ef þetta á að takast. Þá þarf að gera miklar endurbætur á flugvöllum, bæta flugöryggi og eftirlit með öllu í fluginu þarf að efla“, segir Nico Bezuidenhout, framkvæmdarstjóri flugfélagsins Fastjet.

Afríkusambandið vonast til þess að flugfarþegar fari að sjá sjáanlegar breytingar á næstu sex mánuðum með samkomulaginu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga