flugfréttir
Air France ætlar að þjálfa nýja flugmenn innan félagsins
- Fara af stað með „cadet-prógram“ eftir 8 ára hlé
Í stjórnklefa um borð í Airbus A380 risaþotu Air France
Air France hefur ákveðið að hefja á ný þjálfun á nýjum flugmönnum á vegum félagsins en um er að ræða svokallað „cadet-prógram“ sem sífellt fleiri flugfélög eru farin að bjóða upp þar sem nýir flugmenn eru þjálfaðir frá grunni á kostnað flugfélaganna.
Air France þarf á 250 nýjum flugmönnum á að halda á hverju ári til að koma til móts við aukna eftirspurn
og aukin umsvif hjá félaginu.
Air France hefur áður verið með cadet-prógram en félagið hætti því fyrir 8 árum síðan en hefur nú
ákveðið að taka það upp að nýju.
Þjálfun á nýjum flugmönnum hjá Air France mun hefjast í sumar og mun þjálfunin taka frá 20 upp í 24 mánuði
en að þeim tíma loknu munu flugnemar ljúka náminu með atvinnuflugmannsréttindi og vera tilbúnir til að hefja
störf sem flugmenn.
Fyrstu nýju flugmennirnir munu koma til með að fljúga Airbus A320 þotum hjá Air France auk Boeing 737 þotna
hjá dótturfélaginu Transavia.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.