flugfréttir

Airbus A321LR flýgur jómfrúarflugið

- Sögð vera langdrægasta farþegaþota heims sem kemur með einum gangi

31. janúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:39

Airbus A321LR í flugtaki í morgun á Finkenwerden-flugvellinum í Hamborg

Airbus hefur flogið nýju Airbus A321LR þotunni sitt fyrsta flug en jómfrúarflugið var flogið í morgun og stóð það yfir í 2 klukkustundir og 30 mínútur.

Tilraunarþotan hóf sig á loft klukkan 10:13 í morgun að íslenskum tíma frá Finkenwerden-flugvellinum í Hamborg í rigningarsudda og þoku en þrátt fyrir það var veðrið nægilega gott fyrir fyrsta flugið.

Airbus A321LR er langdrægasta útgáfan af Airbus A321 þotunni og er vélin af svokallaðri „neo“-kynslóð en Airbus segir að A321LR þotan sem langdrægasta farþegaþota heims í hópi mjóþotna sem koma með einum gangi.

Fyrsta Airbus A321LR tilraunaþotan kemur með nýrri útfærslu á útgöngum og má með þeim hætti koma fyrir sætum um borð fyrir 240 farþega en útfærslan verður síðar gerð stöðluð fyrir hefðbundnar Airbus A321neo þotur.

Airbus A321LR hefur flugdrægi upp á 7.400 kílómetra

Airbus hefur markaðssett Airbus A321LR þotuna sem lausn fyrir þau flugfélög sem vilja skipta út eldri þotum á markaðnum í sambærilegum flokki á borð við Boeing 757-200.

Þá segir Airbus að framleiðandinn hafi tekið fram úr Boeing er kemur að sölu á þotum með einum gangi og sé hlutfallið ein seld Boeing-þota á hverja fjórar sem seldar eru hjá Airbus.

Boeing hefur viðurkennt að Airbus A321LR fljúgi lengra en Boeing 737 MAX en benda jafnframt á að A321LR þotan reiði sig á þrjá aukaeldsneytistanka á meðan Boeing 737 MAX 10 þarf aðeins einn slíkan tank.

Fleiri myndir:











  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga