flugfréttir

40 tilvik skráð á 26 árum þar sem hreyflahlíf losnar af Airbus A320

1. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:04

Hreyflahlíf losnaði af hreyfli á Airbus A320 þotu frá brasilíska flugfélaginu TAM árið 2012

Á síðustu 25 árum hafa komið upp 40 tilvik þar sem hreyflahlífar hafa losnað af farþegaþotum úr Airbus A320 fjölskyldunni og fallið til jarðar.

Þetta kemur fram í samantekt frá vefsíðunni Air Safety Network sem heldur utan um flugslys og flugatvik en samatektin var gerð í kjölfar skýrslu sem Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna birti á dögunum í kjölfar atviks sem kom upp hjá flugfélaginu Aruba Airlines í september árið 2016.

Þota frá félaginu af gerðinni Airbus A320 var í flugtaki frá flugvellinum í Miami á leið til Oranjestad á Arubaeyjum þegar hlíf losnaði af hægri hreyfli vélarinnar sem er af gerðinni V2527 en hreyfillinn er framleiddur af International Aero Engines (IAE).

Það var farþegi um borð sem kom auga á að eitthvað hefði losnað frá hreyflinum og lét hann flugliða vita sem gerði flugmönnunum viðvart og var ákveðið að snúa aftur við til Miami.

Við niðurstöðu rannsóknar kom í ljós að vélin hafði verið í vikulgeri skoðun í flugskýli nóttina fyrir flugið þar sem flugvirkjar skoðuðu meðal annars hreyfla vélarinnar sem krefst þess að hlífarnar séu opnar.

Fram kom að vegna myrkurs höfðu flugvirkjarnir notað vasaljós til þess að ganga úr skugga um að festingar fyrir hreyflahlífarnar voru fastar en ein festing hafði farið framhjá þeim og var vélin skrifuð út í viðhaldsbók.

Atvikið er eitt af þeim 40 atvikum er varðar hreyflahlífar á Airbus-þotum af gerðinni A320, A321, A319 og Airbus A318 sem upp hafa komið frá árinu 1992.

Hér að neðan má sjá lista með 27 af þeim 40 atvikum sem skráð eru

9. febrúar 1992 - Mexicana - Mexíbkóborg - A320
20. janúar 2000 - Airtours - London Gatwick - A320
12. júní 2000 - America West - Las Vegas, NV - A320
13. september 2000 - Sky Service - Toronto - A320
11. maí 2004 - Iberia - Madrid - A320
13. júlí 2004 - AirTran - Atlanta, GA - A320
22. apríl 2007 - Frontier - Atlanta, GA - A319
9. janúar 2008 - Northwest - Detroit - A319
6. maí 2008 - Spirit Airlines - Detroit - A319
19. janúar 2010 - Mexicana - Cancún - A318
28. janúar 2010 - Volaris - Tijuana - A320
5. apríl 2010 - JetBlue - Newark - A320
27. nóvember 2010 - Air India - Bangalore - A319
10. deseember 2010 - Bulgaria Air - Sofia - A320
30 nóvember 2011 - Wizz Air - Búkarest - A320
19. maí 2012 - TAM - Natal, Brasilía - A320
18. febrúar 2013 - China Southern - Harbin, Kína - A320
24. maí 2013 - British Airways - London Heathrow - A319
12. ágúst 2013 - EasyJet - Mílanó - A320
9. nóvember 2013 - Spirit Airlines - Chicago - A319
18. september 2014 - JetBlue - Long Beach, CA - A320
26. janúar 2015 - Flynas - Jeddah - A320
14. október 2015 - Sky Airlines - Santiago, Chile - A319
16. október 2015 - Tigerair - Singapore - A320
13. júní 2016 - American Airlines - Phoenix - A320
19. september 2016 - Aruba Airlines - Miami - A320
25. júlí 2017 - Bangkok Airways - Bangkok - A320


Hreyflahlífin sem lostnaði af hreyfli á Airbus A320 þotu frá Aruba Airlines árið 2016







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga