flugfréttir
Eftirspurn í fraktflugi í heiminum þrisvar sinnum meiri en framboð
- Besti árangurinn í fraktflugi frá því árið 2010
Fraktflugvélar Bluebird Cargo og DHL á flugvellinum í Leipzig
Langt um meiri eftirspurn var eftir fraktflugi í heiminum árið 2017 miðað við framboð samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Alþjóðasamtökum flugfélaganna (IATA) sem birti nýja skýrslu fyrir árið í fyrra er varðar fraktflug.
Alls þá jókst eftirspurn eftir fraktflugi um 9% í fyrra en framboð á frakflugi jókst aðeins
um 3 prósent sem er minnsta aukning í framboði frá árinu 2012.
Þrátt fyrir það þá hefur fraktflugsmarkaðurinn aldrei verið eins sterkur og hafa orðið miklar breytingar í þróuninni bæði í fraktflugi og í farþegaflugi.
„Fraktflugið er samt sem áður ennþá mjög krefjandi iðnaður og er mikil samkeppni í gangi en
þróunin í fyrra lofar mjög góðu“, segir Alexandre de Junaic, yfirmaður IATA.
Mest var aukningin meðal fraktflugfélaga í Afríku en þar varð 15.6% aukning í fraktflugi samanborið
við árið 2016 og í öðru sæti komu evrópsk flugfélög með aukningu upp á 11.8 prósent.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.