flugfréttir

Boeing 757 og King Air fóru mjög nálægt hvor annarri

- 200 fet skildu vélarnar að undan ströndum Tel Aviv

1. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:14

Aðeins 200 fet skildu að vélarnar tvær þegar minnstu munaði klukkan 04:41 að morgni 30. janúar

Rannsókn hefur hafist á alvarlegu atviki sem átti sér stað er tvær flugvélar fóru mjög nálægt hvor annarri skammt undan ströndum Tel Aviv í Ísrael þann 30. janúar síðastliðinn.

Um er að ræða fraktflugvél frá Fedex af gerðinni Boeing 757-200F sem var í aðflugi að Ben Gurion flugvellinum eftir flug frá Aþenu klukkan 4:41 að morgni þriðjudagsins en vélin var í aðflugi að braut 12 á vellinum í 3.100 fetum.

Á sama tíma hafði King Air 200 flugvél frá Sameinuðu þjóðunum hafið sig á loft frá Sde Dov flugvellinum í Tel Aviv sem er í 13 kílómetra fjarlægð frá Ben Gurion.

Sú vél fór í loftið frá braut 21 og stefndi nánast beint inn í aðflugslínu Boeing 757 þotunnar frá Fedex sem var í aðflugi að Ben Gurion.

King Air vélin hefði ekki fylgt þeirri brottfararleið sem ætlast var til að vélin myndi fara og voru um 200 fet sem skildu vélarnar í sundir þegar minnstu munaði í lóðréttum aðskilnaði en láréttur aðskilnaður var enginn.

King Air vélin átti hinsvegar að taka beygju til norður strax eftir flugtak til að forðast Boeing 757 vélina sem var að koma inn til lendingar á Ben Gurion.

Boeing 757 þotan fór í fráflug í kjölfar atviksins og fór í annað aðflug og lenti 15 mínútum síðar en vél Sameinuðu þjóðanna hélt áfram för sinni.

Atvikið er flokkað sem mjög alvarlegt atvik og hafa flugmálayfirvöld í Ísrael hafið rannsókn á því.

Stærri skýringarmynd:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga