flugfréttir
Sér fram á mikil umsvif í flugi til Afríku á næstu árum
Airbus A380 risaþota Lufthansa á flugvellinum í Jóhannesaborg
Lufthansa Group sér fram á að Afríka muni sækja í sig veðrið á næstu árum og telur framkvæmdarstjóri samsteypunnar að mestu umsvifin í leiðarkerfi dótturfélaganna verði í áætlunarflugi til Afríku.
„Leiðarkerfi okkar til Afríku á eftir að stækka til muna á næstu árum“, sagði Carsten Sphor, framkvæmdarstjóra Lufthansa, í ræðu sinni á blaðamannafundi sem fram fór í Höfðaborg í dag.
Austrian Airlines, Brussels Airlines, SWISS International Air Lines og Eurowings fljúga í dag
til 35 áfangastaða í Afríku en félögin eru öll systurflugfélög Lufthansa í eigu Lufthansa Group.
Fram kemur að Suður-Afríka og Nígeria séu langstærstu markaðirnir í Afríku
en flestar flugferðirnar eru farnar á vegum Brussels Airlines sem Lufthansa keypti árið 2017.
Lufthansa flýgur í dag til 13 áfangastaða í Afríku sem eru Abuja, Addis Ababa, Alsírborg, Kaíró,
Höfðaborg, Casablanca, Jóhannesarborg, Lagos, Luanda, Malabo, Marrakech, Port Harcourt, og
Túnisborg.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.