flugfréttir
Asiana Airlines fékk undanþágu til að fljúga yfir til Norður-Kóreu
- Flugu með suður-kóreska skíðaíþróttaliðið til æfinga í N-Kóreu
Áhöfnin Asiana Airlines við komuna til Wonsan í Norður-Kóreu
Stjórnvöld í Suður-Kóreu fengu undanþágu frá Bandaríkjunum til þess að fljúga tvær flugferðir í sérstöku leiguflugi til Norður-Kóreu í tengslum við vetrarólympíuleikana.
Asiana Airlines flaug eitt flug frá suður-kóresku borginni Yangyang til Wonsan í Norður-Kóreu
til að senda suður-kóreska skíðaíþróttaliðið í æfingarbúður sem er hluti af sameinuðum æfingum með norður-kóreska
skíðaliðinu fyrir vetrarólympíuleikana sem hefjast í Suður-Kóreu þann 9. febrúar.
Ríkisstjórn Suður-Kóreu fékk undantekningu frá bandarískjum stjórnvöldum sem hafa
hótað því að refsa þeim löndum sem brjóta sáttmála um viðskiptaþvinganir á hendur
Norður-Kóreu.
Norður-Kóreumenn munu taka þátt í vetrarólympíuleikunum sem hefjast þann 9. febrúar
„Við áttum viðræður við Bandaríkin til að koma í veg fyrir átök og deilur og fengum undanþágu fyrir þetta
eina skipti“, segir Baik-Tae-hyun, talsmaður Asiana Airlines.
Flugvélin, sem var notuð til flugsins, er af gerðinni Airbus A321 en samkvæmt sáttmála þá má engin flugvél
fljúga til Bandaríkjanna næstu 180 daga eftir að hún hefur flogið til Norður-Kóreu og það sama á við um skip.
Flugið til Norður-Kóreu var flogið þann 31. janúar sl. og mun íþróttafólkið æfa á skíðasvæðinu í Masikryong í Norður-Kóreu og munu þeir halda til baka í dag eftir tveggja daga æfingar.
Air Koryo, ríkisflugfélag Norður-Kóreu, er eina flugfélagið sem tengir landið við önnur lönd
en Air China hætti að fljúga til landsins í nóvember í fyrra.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.