flugfréttir

Íhuga að fljúga frá meginlandi Evrópu til Ameríku með A321LR

- „Hefur flugþol frá meginlandinu yfir hafið sem 737 MAX hefur ekki“

2. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 08:37

Norwegian fær fyrstu Airbus A321LR þotuna afhenta árið 2019

Norwegian segir að mögulega komi til greina að nota Airbus A321LR þotuna í áætlunarflug yfir Atlantshafið þegar félagið fær fyrstu vélarnar afhentar árið 2019.

„7.400 kílómetra flugdrægi Airbus A321LR þotunnar mun gefa okkur tækifæri á að fljúga frá meginlandi Evrópu til Bandaríkjanna sem er flugþol sem Boeing 737 MAX 8 ræður ekki við“, sagði Thomas Ramdahl, rekstarstjóri Norwegian.

Ramdahl nefnir að Norwegian gæti til að mynda flogið til Bandaríkjanna frá evrópskum höfuðborgum á borð við Berlín, Brussel, Búdapest og Prag.

Til greina kemur að Norwegian hefji aftur flug til Baltimore-flugvallarins eða til Washington Dulles með Airbus A321LR en Ramdahl segir að Dreamliner-þoturnar henti ekki í það flug og svo séu borgirnar of langt í burtu til að hægt sé að nota Boeing 737 til flugsins.

Norwegian hefur pantað 31 eintak af Airbus A321LR en nokkur flugfélög ætla sér á næstunni að hefja flug yfir Atlantshafið með þessari þotu og þar á meðal eru Aer Lingus, Primera Air og Air Transat.

„Boeing 737 MAX virkar mjög vel í flug frá Bretlandi og Írlandi til austurstrandar Bandaríkjanna en þar sem vélin hefur flugþol upp á 6.510 kílómetra þá kemst hún ekkert lengra inn á meginland Evrópu“, segir Ramdahl.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga