flugfréttir

Betra verð á bílastæði á KEF ef bókað er á Netinu

- Farþegar geta bókað bílastæði fram í tímann á nýjum bókunarvef Isavia

2. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:00

Þeir farþegar sem eru á leið í flug geta nú tryggt sér bílastæði á betra verði en þeir sem borga við hlið

Isavia hefur nú kynnt bókunarkerfi á vef Keflavíkurflugvallar þar sem farþegar geta bókað bílastæði á flugvellinum fram í tímann.

Þannig geta þeir farþegar sem eru á leið í flug tryggt sér bílastæði á betra verði en þeir sem borga við hlið en með þessu nýja bókunarkerfi minnka auk þess líkur á því að stæðin fyllist á álagstímum á flugvellinum.

Þann 1. mars verður einnig tekin upp ný gjaldskrá við bílastæðahlið og mun verð fara úr 1.250 krónum í 1.750 krónur á dag ef borgað er við hlið án þess að bóka bílastæði fyrirfram.

Lægsta verð sem er í boði núna ef bókað er á vefnum er hins vegar 940 kr. á dag en verðið fer eftir eftirspurn á hverjum tíma. Þannig mun stór hluti farþega sem bóka bílastæði fá betra meðalverð á dag en áður hefur boðist auk þess sem farþegar geta gengið að bílastæðinu vísu.

Kerfið er þekkt á flugvöllum víða um heiminn og hefur að sögn Hlyns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar, verið í þróun og innleiðingu hjá Isavia í meira en ár.

Bókunarvefur Isavia

Hafa kerfi sem þessi reynst afar vel á erlendum flugvöllum og þá sérstaklega þegar kemur að aðgangsstýringu á bílastæðin.

„Þessi nýja leið mun vonandi verða til þess að Íslendingar nýti sér hana, bæði til að spara og sýna fyrirhyggju þegar kemur að ferðalaginu. Verðið sem viðkomandi fær fer þá eftir framboði og eftirspurn, það er hversu margir hafa bókað á undan á sama tíma“, segir Hlynur.

„Því gefur augaleið að til að fá bílastæðið á sem bestu kjörum á álagstímum eins og um páska, í sumar og um jól er best að bóka með góðum fyrirvara.“

Í farþegaspá Isavia fyrir Keflavíkurflugvöll, sem kynnt var í nóvember síðastliðnum, er spáð töluverðri fjölgun íslenskra farþega sem ferðast um flugvöllinn og er sú spá í takt við þróun síðastliðinna ára.

Á miklum álagstímum hefur það atvikast að bílastæðin við flugvöllinn hafa fyllst en í dag eru langtímastæði 2.400 talsins.

Isavia er því með þessu framtaki að hvetja viðskiptavini til að bóka bílastæði um leið og flug er bókað sem geta þannig tryggt sér betra verð og öruggt bílastæði.

Hér má skoða bókunarvélina og bóka bílastæði á vef Keflavíkurflugvallar







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga