flugfréttir
Hörður: Þeir segja að það sé draumur að fljúga Dornier-num“
- Dornier 328 verður stærsta flugvélin í flota Ernis þegar hún kemur í vor
Hörður Guðmundsson, stofnandi flugfélagsins Ernis, og tölvugerð mynd af Dornier 328 í litum félagsins
Flugfélagið Ernir hefur fest kaup á nýrri farþegaflugvél sem verður sú stærsta í flota félagsins en vélin er af gerðinni Dornier 328 og tekur 32 farþega í sæti.
Vélin er þessa daganna í Þýskalandi og verður henni flogið til landsins þegar nær dregur vorinu og verður hún notuð bæði
í áætlunarflugi innanlands og einnig í leiguverkefnum.
Hörður Guðmundsson, framkvæmdarstjóri og stofnandi flugfélagsins Ernis, segir að nokkrar tegundir af vélum hafi komið til greina en á endanum þótti Dornier 328 bera af og varð hún fyrir valinu.
„Við skoðuðum Jetstream 41 og Saab 340B og svo þegar maður bar þetta saman út frá afkastagetu og frammistöðu er varðar
brautarnotkun þá kom Dornier-inn betur út“, segir Hörður í viðtali við Alltumflug.is.
Samkvæmt heimildum þá er D-CMHD vélin sem Ernir hefur fest kaup á
Þá tekur hann fram að þróun og hönnunin á Dornier 328 sé allt að 20 til 30 árum yngri samanborið við hinar vélarnar. „Saab-inn
er hannaður á 40 til 50 ára gömlum grunni en Dornierinn er yngri. Hin hönnunin er bara miklu eldra“, segir Hörður.
Dornier 328 kom á markaðinn árið 1991 en vélin sem Ernir hefur keypt var smíðuð árið 1998 og hefur hún m.a. verið í flota
skoska flugfélagsins Loganair en seinast hefur vélin verið í eigu þýska félagsins MHS Aviation.
Afkastamikil flugvél sem er draumur margra flugmanna
Hörður segir að Dornier 328 sé með mjög góða afkastagetu á flugbrautum og góða flugeiginleika við erfiðar aðstæður, lætur mjög vel af stjórn og sé lipur í snúningum.
„Við erum með flugmenn sem hafa flogið þessum vélum og það tala allir um að hún sé draumur flugmannsins og þeir hafa látið vel af henni“, segir Hörður.
„Það hafa nokkrir flugmenn, sem eru að fljúga erlendis, haft samband og sagst vilja endilega fljúga vélinni. Þeir hafa sumir flogið
Dornier og eru farnir að hringja í mig og spyrja hvort þeir fái ekki bara vinnu“, segir Hörður.
Stjórnklefinn á Dornier 328 vélinni
Dornier-vélin er í fullkomnu standi og er um mjög gott eintak að ræða og verður vélin tilbúin í slaginn í vor fyrir sumarvertíðina
en vélin verður aðallega notuð í flugi til Hafnar í Hornafirði og til Húsavíkur en einnig verður hún sett inn á
aðra áfangastaði eftir þörfum.
Gæti alveg komið til greina að taka fleiri Dornier-vélar
„Við ætlum að skoða þetta svona eftir ár eða svo og sjá hvernig hún passar inn í þau verkefni sem við erum með. Ef það tekst
vel til þá gætum við selt einn Jetstream og fengið okkur aðra svona vél“, segir Hörður sem bendir á að það sé mikilvægt
að vera með tvær vélar af sömu gerð sem geta bakkað hvora aðra upp á meðan önnur er í skoðun.
Ernir hefur í dag fjórar flugvélar í áætlunarflugi sem eru af gerðinni Jetstream 32 sem taka 19 farþega en einnig
hefur félagið aðrar minnir flugvélar sem eru notaðar í önnur verkefni.
Næg verkefni og góðar bókanir fyrir sumarið
Mjög góðar bókanir hafa verið hjá Erni og er útlitið bjart fyrir sumarið og næg verkefni í gangi hjá flugfélaginu sem er eitt
það elsta á Íslandi sem rekið hefur verið undir sama nafni og sömu kennitölu frá upphafi en félagið var stofnað árið 1970.
Svona myndi Dornier 328 líta út í litum Ernis
Ernir hefur meðal annars verið að ráða nýja flugmenn sem hafa verið að gangast undir námskeið
að undanförnu á Jetstream-vélarnar en það mun taka um tvo mánuði að þjálfa þá flugmenn sem munu fljúga nýju Dornier-vélinni.
„Við erum með fjóra nýja flugmenn sem voru á námskeiði sem verða framtíðarflugmenn okkar næstu árin. Við höfum
voða lítið gert af því að segja upp flugmönnum og langt síðan að við höfum þurft að gera það“, segir Hörður sem
tekur fram að alls séu 70 manns í vinnu hjá félaginu yfir sumarmánuðina og eitthvað færri yfir vetrartímann.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.