flugfréttir
Ryanair mun hefja flug til Jórdaníu
Boeing 747-800 þota Ryanair
Ryanair hefur tilkynnt að félagið ætlar sér að færa út kvíarnar til Miðausturlanda með flugi til Jórdaníu í vor.
Félagið segir að til standi að fljúga til tveggja áfangastaða í Jórdaníu sem eru Amman og Aqaba og sér félagið fram á að
um 500.000 farþegar munu fljúga til borganna tveggja á ári.
Ryanair ætlar að fljúga eina flugleið til Amman frá Paphos á Kýpur í mars með möguleika á að fljúga 10 flugleiðir til viðbótar
í haust með flugi til Jórdaníu frá Brussel, Búdapest, Krakow, Mílanó og frá Prag.
Ferðamálaráðherra Jórdaníu fagnar ákvörðun Ryanair og segir að þetta muni bjóða farþegum nýung í flugsamgöngum til Evrópu.
Jórdanía er annað landið í Miðausturlöndum sem Ryanair hefur flug til en félagið flýgur einnig til Tel Aviv í Ísrael.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.