flugfréttir
Fyrstu myndirnar af 737 MAX 7
- Flugprófanir hefjast á næstu vikum
Fyrsta eintakið af Boeing 737 MAX 7 mun fara jómfrúarflugið og hefja flugprófanir á næstu dögum
Birtar hafa verið fyrstu myndirnar af Boeing 737 MAX 7 þotunni sem er minnsta tegundin af MAX þotunum en jafnframt sú langdrægasta.
Þetta er fyrsta Boeing 737 MAX 7 þotan sem smíðuð er og mun vélin, sem er tilraunarþota, hefja flugprófanir á næstu vikum
en nýlega var lokið við að mála þotuna í „innanhúslitum“ Boeing.
Southwest Airlines verður fyrsta flugfélagið til að fá Boeing 737 MAX 7 afhenta og á félagið von á 30 eintökum en
aðeins hafa tveir aðrir viðskiptavinir pantað þessa vél sem er WestJet og Canada Jetlines.
Tvær tilraunaþotur af þessari gerð munu taka þátt í flugprófunum en á næstunni munu fara fram prófanir
á stjórntækjum og tilraunarbúnaði um borð áður en jómfrúarflugið verður flogið auk þess sem athuganir verða
gerðar með eldsneytiskerfið og þá á eftir að fara fram uppkeyrsla á hreyflum.
Boeing 737 MAX 7, sem er aðeins lengri en fyrirrennari hennar, Boeing 737-700, getur flogið með allt að 172
farþega og hefur flugdrægi upp á 7.120 kílómetra.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.