flugfréttir
Uppfyllir ekki strangar kröfur Qatar Airways
- Afhendingar frestast um óákveðinn tíma á fyrstu A350-1000 þotunni
Fyrsta Airbus A350-1000 þotan fyrir Qatar Airways
Enn og aftur er Qatar Airways óánægt með atriði er varðar nýja farþegaþotur sem félagið er að fá frá Airbus en félagið ákvað fyrir áramót að fresta afhendingum á Airbus A350-1000 þotunum.
Qatar Airways hefur ekki viljað nefna áætlaðan afhendingardag fyrir Airbus A350-1000
en Francois Obe, markaðsstjóri félagsins, segir að Qatar Airways sé ekki fullkomlega ánægt
með vélina.
„Það sem við viljum er að fá þotu sem uppfyllir þær miklu vængingar sem við gerum
til vélarinnar“, segir Obe.
Obe tók samt fram að stjórn Qatar Airways hafi líka mjög vel við vélina er hún kom
til Qatar í heimsókn sinni um Miðausturlönd í janúar en þrátt fyrir það þá er það hlutverk
Airbus að afhenda vélina í samræmi við strangar kröfur félagsins.
Upphaflega stóð til að Qatar Airways myndi fá fyrstu A350-1000 þotuna fyrir síðustu áramót
en ekki hefur verið gefið upp hvaða atriði það eru sem uppfylla ekki kröfur félagsins.
Afhendingu á fyrstu Airbus A380 risaþotunni var einnig frestað á sínum tíma þar sem
Qatar Airways sagði að misræmi væri á mynstri á teppi á gólfum þotunnar sem hitti ekki
nákvæmlega við sambærilegt mynstur á veggjaklæðningum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.