flugfréttir
Etihad hættir með langdrægustu farþegaþotu heims
- Munu taka allar Boeing 777-200LR þoturnar úr flotanum
Boeing 777-200LR þota Etihad Airways í flugtaki á flugvellinum í Los Angeles
Etihad Airways ætlar að hætta með allar fimm Boeing 777-200LR þoturnar á næstunni og verða þær allar teknar úr flotanum.
Talsmaður Etihad Airways segir að þetta sé liður í hagræðingu á flota þar sem félagið
er að fá nýjar farþegaþotur afhentar.
Etihad Airways er á næstunni að fara að minnka
umsvif sín í flugi til Bandaríkjanna sem mun gera Boeing 777-200LR vélarnar óþarfar en Boeing 777-200LR þotur félagsins hafa verið notaðar
meðal annars í flugi frá Abu Dhabi til Dallas og Los Angeles, auk áfangastaða í Evrópu.
Etihad Airways hætti að fljúga til San Francisco í október 2017 og þá mun félagið hætta að
fljúga til Dallas í mars en áfram verður flogið til Chicago, Los Angeles, New York og Washington
með Boeing 777-300ER og risaþotunni Airbus A380.
Tvær Boeing 777-200LR þotur voru þann 1. febrúar og 3. febrúar ferjaðar frá Abu Dhabi til Teruel-flugvallarins á Spáni en mögulega verða þær seldar nýjum eiganda.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.