flugfréttir
Ljósmynd af tveimur Boeing 737 sem fóru of nálægt hvor annarri
- Fór í rangan fráflugsferil og í veg fyrir þotu í flugtaki á annarri braut
Um 700 fet skildu vélarnar að þegar minnst var
Tyrkneskur flugvélaljósmyndari náði ljósmynd af alvarlegu atviki er tvær farþegaþotur, sem báðar eru af gerðinni Boeing 737, fóru mjög nálægt hvor annarri við Ataturk-flugvöllinn í Istanbul sl. föstudag.
Atvikið átti sér stað með þeim hætti að önnur þotan, sem er frá rússneska flugfélaginu
Pobeda, var í aðflugi að braut 23 eftir flug frá Moskvu þegar flugmenn vélarinnar ákváðu að fara í fráflug (go-around).
Vélin fór hinsvegar ekki eftir þeim fráflugsferli sem ætlast er til að flogið sé eftir í aðfluginu
að brautinni. Í stað þess að taka beygju strax til vinstri hélt vélin áfram og beint
í veg fyrir aðra Boeing 737-800 þotu frá Pegasus Airlines sem var í flugtaki á braut 17R á leið til borgarinnar
Izmir.
Flugferill flugvélanna á Flightradar24.com um klukkan 11 á föstudag
Pegasus-þotan var komin í 700 feta en fram kemur að rússneska þotan frá Pobeda
hafi verið í 1.700 fetum og hafi því lóðréttur aðskilnaður vélanna verið um 700 fet á meðan
lárétt fjarlægð milli vélanna var 820 fet.
Þotan frá Pegasus Airlines hætti flugtaksklifri í 1.000 fetum til að halda sig fyrir neðan
þotuna frá Pobeda sem fór í annað aðflug og lenti í Istanbul 21 mínútu síðar. Þotan frá Pegasus
hélt för sinni áfram og lenti 43 mínútum síðar í Izmir.
Flugmálayfirvöld í Tyrklandi vinna að rannsókn málsins sem er flokkað sem alvarlegt atvik.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.